Kristjánshöfn & Kristjanía
Við hittumst við Inderhavnsbrúna (Innrihafnarbrúna), Nýhafnarmegin, göngum yfir brúna til Christianshavn, sem er 400 ára gömul eyja þar sem 13 þúsund manns búa. Á brúnni er frábært útsýni yfir höfnina en þar hefur margt breyst á undanförnum árum. Sjáum meðal annars dýrustu íbúðir borgarinnar, óperuna og gömlu pakkhúsin. Heyrum af þróun svæðisins. Áður fyrr var Kristjánshöfn iðnaðar- og hersvæði, en núna er þar að finna bæði dýrustu íbúðir borgarinnar sem og fríríkið Kristjaníu, sem er litskrúðug blanda. Við göngum meðfram skurðinum, skoðum seglbátana og á Strandgötu sjáum við elstu íbúðarhúsin í Kaupmannahöfn. Ef við höfum heppnina með okkur heimsækjum við einn eða tvo fallega, falda og gamla húsagarða. Við göngum fram hjá Frelsarakirkjunni og horfum um leið á fegursta kirkjuturn borgarinnar. Við heimsækjum Kristjaníu, þar sem um það bil þúsund manns búa saman í sátt og samlyndi, þó að það hafi ekki alltaf verið þannig, eins og við munum fá að heyra. Margt hefur gerst þar á síðustu 50 árum. Kristjanía er kölluð samfélagsleg tilraun. Við göngum til baka á gömlu virkisveggjum borgaarinnara inn í miðju Kristjánshafnar og ljúkum ferðinni á Kristjánshafnartorgi, Gangan getur tekið tvær eða þrjár klukkstundir. Leiðin er sú sama, en ef gangan er þrjár klukkustundir þá gefst m.a. tími til að stoppa í drykk og spjall.
- Falleg síki Christianshavn
- Fríríkið Christiania
- Arkitektúr og samfélag
- Sögur utan alfaraleiðar
Við staðfestum persónulega hvort leiðsögumaður sé laus. Greitt er á netinu eftir staðfestingu.
Ykkar Kaupmannahöfn byrjar hér.
Segið okkur hvað ykkur langar að upplifa. Við athugum dagsetninguna og svörum persónulega. Fyrirspurn er ekki staðfest bókun.
hraholm@me.com+4520683050