COPENHAGENwith Hrannar & Ásta
EINKAFERÐIR · PERSÓNULEGAR SÖGUR

Kaupmannahöfn.
Með okkur, á ykkar hátt.

Faldir uppáhaldsstaðir, lifandi sögur og tími til að njóta. Kynnist okkar Kaupmannahöfn í einkaferð með Hrannari og Ástu.

HrannarÁsta
5.0 · 96 Umsagnir / Withlocals
Nyhavn, København NYHAVN, KØBENHAVN
Hej!Ykkar hópur. Ykkar taktur. Okkar Kaupmannahöfn.
55°40′ N   12°34′ E
Persónulegt alla leiðYkkar taktur, ykkar borgDE · EN · IS · DKÍslenskar rætur. Hjartað í Höfn.
01 / Ferðirnar okkar

Ein borg. Ótal sögur.

Þekktu kennileitin og litlu staðirnir þar á milli. Finnið ferðina sem hentar ykkur.

Medieval Town WalkÁ fæti01
2–3 klst. 1–10

Miðaldabærinn og Íslendingaslóðir

DEENISDA

Ganga um elstu götur Kaupmannahafnar, framhjá földum húsagörðum, fornum kirkjum og torgum sem hafa sagt sögur sínar í aldir. Gengið á slóðir Íslendinga sem hér hafa verið öldum saman. Möguleiki á að enda í Jónshúsi.

frá 200 €fyrir hópinn
Christianshavn & ChristianiaÁ fæti02
2–3 klst. 1–10

Christianshavn & Christiania

DEENISDA

Tveir heimar hlið við hlið: falleg síki Christianshavn og fríríkið Christiania.

frá 200 €fyrir hópinn
The Vesterbro wayÁ fæti03
2–3 klst. 1–10

Lífið á Vesterbro

DEENISDA

Hverfi sem hefur tekið miklum breytingum og iðar af lífi.

frá 200 €fyrir hópinn
NørrebroÁ fæti04
2–3 klst. 1–10

Nørrebro

DEENISDA

Fjölbreyttasta hverfi borgarinnar: götumatur, götulist, fjölmenningarlegir markaðir og einn fallegasti kirkjugarður Evrópu.

frá 200 €fyrir hópinn
Bike TourÁ hjóli05
2–3 klst. 1–10

Hjólaferð

DEENISDA

Best er að upplifa Kaupmannahöfn eins og heimamenn: á hjóli.

frá 200 €fyrir hópinn
Copenhagen Food TourÁ fæti06
2–3 klst. 1–10

Matarganga

DEENISDA

Bragðað á því besta í gömlu höfuðborginni.

frá 200 €fyrir hópinn
Pub TourKrár & kræsingar07
2–3 klst. 1–10

Kráarrölt

DEENISDA

Gönguferð með leiðsögn um heillandi krár og bari Kaupmannahafnar.

frá 200 €fyrir hópinn
Á fæti08
2–3 klst. 1–10

Íslendingaslóðir

IS

Við göngum á slóðir Íslendinga í Kaupmannahöfn, rifjum upp tengsl þjóðanna og skoðum borgina með íslenskum augum.

frá 200 €fyrir hópinn
Group & Corporate ToursSérsniðið09
2–3 klst. 1–10

Hópa- og fyrirtækjaferðir

DEENISDA

Sérsniðnar upplifanir fyrir teymi, ráðstefnur og stærri hópa.

frá 200 €fyrir hópinn
Hrannar Hólm
Hrannar
Ásta Stefánsdóttir
Ásta
Velkommen!
02 / Hrannar & Ásta

Með fólki sem á hér heima.

Íslenskar rætur. Hjartað í Höfn.

Við erum Hrannar og Ásta. Ræturnar eru á Íslandi en daglega lífið í Kaupmannahöfn. Við sýnum ykkur borgina af forvitni, með persónulegum sögum og góðum húmor. Hvort sem þetta er fyrsta heimsóknin eða þið eruð löngu fallin fyrir borginni hlökkum við til að taka á móti ykkur.

Hrannar Hólm

Leiðsögumaður · Sögumaður · Körfuboltaþjálfari

Leiðsögn á þýsku, ensku, íslensku og dönsku

Bestu borgarsögurnar lifa áfram löngu eftir að göngunni lýkur.

Hrannar hefur verið Kaupmannahafnarbúi í rúman áratug og lagt sig fram við að kynnast borginni og sögu hennar á alla mögulega og ómögulega vegu. Hann starfar mestmegnis við fyrirtækjaráðgjöf og körfuboltaþjálfun og hefur um árabil gengið um borgina með áhugasömum hópum. Honum finnst skemmtilegt að segja sögur, bæði sannar og lognar.

Hafa samband við Hrannar

Ásta Stefánsdóttir

Leiðsögukona · Menningarmiðlari á Norðurbryggju

Leiðsögn eingöngu á íslensku

Kaupmannahöfn verður einstök þegar þið kynnist fólkinu, menningunni og litlu smáatriðunum.

Ásta hefur búið í Kaupmannahöfn síðan 1994 og þekkir því borgina eins og lófa sinn. Draumur um inngöngu í danskan leiklistarskóla dró hana til landsins en þótt sá draumur hafi vikið fyrir öðru á Kaupmannahöfn enn hug og hjarta Ástu. Hún starfar á Norðurbryggju, menningarhúsi Íslands, Færeyja og Grænlands á Kristjánshöfn, þar sem hún hefur sinnt leiðsögnum fyrir hópa undanfarin 14 ár.

Hafa samband við Ástu
Kynnist okkur

Persónulegt alla leið

Einkaferð sniðin að áhugamálum ykkar. Með tíma fyrir spurningar, smá útúrdúra og góða sögu.

Ykkar taktur, ykkar borg

Á fæti eða á hjóli, tvö saman eða stærri hópur. Við finnum réttu leiðina saman.

Fjögur tungumál, hlýjar móttökur

Þýska, enska, íslenska eða danska. Þið veljið tungumál ferðarinnar.

03 / Umsagnir

Góðar minningar ferðast með.

Umsagnir á upprunalegu tungumáli

5.0/ 596 Umsagnir

Gerne wieder!

Wir hatten eine dreistündige Fahrradtour durch Kopenhagen mit Hrannar. Die war sehr kurzweilig, interessant und perfekt organisiert - Infos gab es auch schon im Vorfeld der Tour. Hrannar ist ein sympathischer Guide, der mit viel Wissen und Begeisterung durch die Stadt geführt hat. Absolut empfehlenswert für alle die, die Stadt auf eine besondere und unkomplizierte Weise entdecken möchten.

UUnbekanntjúní 2026 · Withlocals

Es lohnt sich!

Angenehmer Führer. Informative, unterhaltsame und kurzweilige Stadtführung

IIrenejúní 2026 · Withlocals

Perfekt für Studenten

Hrannar war eine großartige Wahl für meine Studenten. Es war eine ausgewogene Menge an Informationen. Er hatte ein gutes Gespür für sie. Die Kommunikation war sehr einfach.

SStefaniejúní 2026 · Withlocals
04 / Verð

Einkaferð. Eitt verð fyrir hópinn.

Verðið gildir fyrir allan hópinn. Engir ókunnugir og ekkert stress.

Í hjólaferðum getur bæst við hjólaleiga: 27 € / hjól.
Drykkir í kráarferðum eru greiddir sérstaklega.

Lengdgestirfyrir hópinn
2 klst.15200 €
2 klst.610250 €
3 klst.15275 €
3 klst.610325 €

Fleiri en 10 gestir eða sérstakar óskir? Skipuleggjum það saman.

Skipuleggjum ferð

Gefið upplifun í Kaupmannahöfn.

Sameiginleg upplifun í stað enn eins hlutarins. Heyrið í okkur um ferð að gjöf.

Spyrja um gjöf
HRANNAR & ÁSTA · KØBENHAVN

Ykkar Kaupmannahöfn byrjar hér.

Segið okkur hvað ykkur langar að upplifa. Við athugum dagsetninguna og svörum persónulega. Fyrirspurn er ekki staðfest bókun.

hraholm@me.com+4520683050
Ykkar hópur. Ykkar taktur. Okkar Kaupmannahöfn.

Hrannar og Ásta sinna leiðsögn á íslensku. Hrannar leiðsegir einnig á þýsku, ensku og dönsku.

Verð fyrir hópinnEUR200 €

Ókeypis afpöntun með að minnsta kosti 24 klst. fyrirvara. Seinni afpantanir leiða ekki til sjálfvirkrar endurgreiðslu.

Við staðfestum persónulega hvort leiðsögumaður sé laus. Greitt er á netinu eftir staðfestingu.

FAQ

Gott að vita

Er ferðin aðeins fyrir okkar hóp?

Já. Aðeins ykkar eigin hópur og leiðsögumaðurinn eru í ferðinni.

Hvar hittumst við?

Við ákveðum hentugan stað saman fyrir ferðina. Allar tímasetningar miðast við Kaupmannahöfn.

Hvað ef það rignir?

Við elskum Höfn líka í rigningunni. Klæðið ykkur eftir veðri. Sérstakar aðstæður ræðum við persónulega.

Hvernig virka bókun og greiðsla?

Sendið óskadagsetninguna. Eftir staðfestingu okkar getið þið greitt í gegnum einkahlekk bókunarinnar.

WhatsApp