COPENHAGENwith Hrannar & Ásta
Til baka
Á fæti · KØBENHAVN

Miðaldabærinn og Íslendingaslóðir

Gangan hefst á Ráðhústorginu sem er eins konar miðpunktur borgarinnar. Fyrir ekki svo löngu voru hér borgarmúrar og hlið sem var lokað á nóttunni; Vesturhliðið eða Vesterport. Allt fyrir utan torgið var sveit. Gengið verður um Pissurennuna, eitt elsta hverfi Kaupmannahafnar, sem geymir margar sögur um fjölskrúðugt mannlíf og einnig Jónas Hallgrímsson. Þar er enn líf og fjör í þröngum strætunum sem hýsa yfir 80 bari og veitingastaði. Þaðan er haldið yfir í Latínuhverfið þar sem íslensk saga er við hvert fótmál, enda bæði Gamli Garður og Háskólinn á svæðinu. Gengið í gegnum Miðaldabæinn sem hefur iðað af lífi í 850 ár og líklegast lengur. Auk þess að vera uppspretta sagna um Íslendinga í alls konar ástandi, beljur á fjórðu hæð og ódýra snagagistingu hefur miðbær Kaupmannahafnar þróast og breyst á undanförnum tuttugu árum og er í dag sannkölluð heimsborg sem ávallt er gaman er að skoða. Gengið er útúr Miðaldabænum og í gegnum Kóngsins garð þar sem Rósenborgarhöll er staðsett. Göngunni lýkur síðan með heimsókn í Jónshús þar sem Jón Sigurðsson bjó frá 1854 til dauðadags 1879. Þar verður tekið á móti gestum með veitingum og kynningu um húsið. Sjálf gangan tekur um 2 klst. og heimsóknin í Jónshús tekur tæpa klukkustund. Ef valið er að sleppa heimsókninni í Jónshús, þá endar gangan á Kóngsins nýjatorgi og tekur alls um 2 klst.

  • Faldir miðaldahúsagarðar
  • Elstu kirkjur borgarinnar
  • Sögur af stofnun Kaupmannahafnar
  • Söguleg torg utan alfaraleiðar
2–3 klst.·frá 200 € fyrir hópinn
Skipuleggjum ferð

Við staðfestum persónulega hvort leiðsögumaður sé laus. Greitt er á netinu eftir staðfestingu.

DEENISDA
Medieval Town Walk
HRANNAR & ÁSTA · KØBENHAVN

Ykkar Kaupmannahöfn byrjar hér.

Segið okkur hvað ykkur langar að upplifa. Við athugum dagsetninguna og svörum persónulega. Fyrirspurn er ekki staðfest bókun.

hraholm@me.com+4520683050
Ykkar hópur. Ykkar taktur. Okkar Kaupmannahöfn.

Hrannar og Ásta sinna leiðsögn á íslensku. Hrannar leiðsegir einnig á þýsku, ensku og dönsku.

Verð fyrir hópinnEUR200 €

Ókeypis afpöntun með að minnsta kosti 24 klst. fyrirvara. Seinni afpantanir leiða ekki til sjálfvirkrar endurgreiðslu.

Við staðfestum persónulega hvort leiðsögumaður sé laus. Greitt er á netinu eftir staðfestingu.

WhatsApp